Fréttir

Pörun



19.3.2012

Því miður hefur komið í ljós að Perla er ekki hvolpafull, reynum væntanlega aftur í haust



Við erum með ræktunarnafnið

 PERLUGULL










Perla kemur frá Noregi, ræktandi hennar  
 Eivind Mjærum er heimsþekktur ræktandi sem hefur ræktað golden hunda síðan 1967, hann hefur ræktað 58 meistara og selt sína hunda víða um heim. Hann er alþjóðadómari.  Hann er með ræktunina Mjærumhögda´s.
 Perla er afskaplega ljúf og góð, dálítið feimin,  sterkur hundur,  áramótasprengingar eru ekki vandamál fyrir hana.  
Hún hefur ekki sýnt sýnar bestu hliðar á sýningum,  en á retrieversýningunni í sumar sagði dómarinn Jens Erik Sönderup að þetta væri flottur hundur, engar áhyggjur af því að hún sýndi sig ekki,  bara að æfa meira, takk.  En hvað um það við gætum ekki hugsað okkur betri og skemmtilegri hund. Hún hefur lokið bæði                                                                       hvolpanámskeiði og hlýðni 1 sem gekk mjög vel.


__________________________________________________________________



Adam Blanc  kemur frá Steinunni Guðjónsdóttur sem er með ræktunina "Great North Golden"
Foreldrar Adams eru þau  Gaby  (C.I.E. ISShCh Standelbec Gabriella IS1027/07 sem kemur frá Írlandi og     Josh  (Allways On My Mind) sem kemur frá Ungverjalandi, margfaldir meistarar, sem allir þekkja sem eitthvað fylgjast með í golden heiminum á Íslandi.  Síðan má bæta því við að afi Adams Dewmist Silk Screen "Storm" varð "WORLD WINNER" 2009 og er með titilinn Multi Champion  hann er 2 x European winner og Junior European winner. sem er frábær árangur.  Bæði afi og amma í föðurætt kláruðu veiðipróf  sumarið  2010. Langamma, Styal Silksilla & langafi, Erinderry Gaelic Minstrel urðu bæði "Veteran World Winner 2008"  / heimsmeistarar í Öldungaflokki.  Styal Silksilla hefur hampað titlinum " Best gun dog" 10 sinnum.
Adam er mjög ljúfur, fjörugur og einstaklega skemmtilegur hundur auðvelt að þjálfa hann. Hann er búinn með hvolpanámskeið og Retriever 1, prófið eftir. Hann er mjög efnilegur, fékk í hvolpaflokki Excellent og 1.sæti+besti hvolpur tegundar.  Ungliðafl. Excellent 1. sæti , Ungliðafl. Retriever sýning Excellent +1. sæti + Meistaraefni.    Unghundafl. Excellent+ 3.sæti+Meistaraefni., 

Retriever sýningin á Úlfljótsvatni 2. júlí 2011 gekk mjög vel  Adam fór í Unghundaflokk fékk Excellent, 1.sæti unghundaflokki, 2.sæti í Besti rakki, og Íslenskt meistarastig :)  


             

_________________________________________________________________

Við höfum mikla trú á því að þau geti gefið af sér flotta einstaklinga, og gaman að fá NÝJA  blöndu inn í landið. Þetta yrði fyrsta got Perlu og Adams Blanc.
Vorum að fá þær gleðifréttir að Adam er eingöngu með C mjöðm öðru megin A hinum megin sem segjir okkur að þetta er ekki meðfætt heldur áunnið þ.e. eitthvað komið fyrir. 
_________________________________________________________________







Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 21665
Samtals gestir: 8451
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:55:41